Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. júlí 2021 15:56
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi Max-kvenna: Eyjakonur sóttu stig á Akureyri
Hanna Kallmaier skoraði jöfnunarmark ÍBV
Hanna Kallmaier skoraði jöfnunarmark ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 1 - 1 ÍBV
1-0 Colleen Kennedy ('48 )
1-1 Hanna Kallmaier ('65 )
Lestu um leikinn

Þór/KA og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í tíundu umferð Pepsi Max-deildar kvenna í dag en spilað var á SaltPay-vellinum á Akureyri.

Ekkert var skorað í fyrri hálfleiknum en leikurinn var frekar lokaður fram að síðustu fimm mínútunum.

Þór/KA náði forystunni í upphafi síðari hálfleiks með marki frá Colleen Kennedy.

Colleen ætlaði að senda boltann fyrir markið en sendingin var slök og á markið. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving misreiknaði eitthvað boltann og missti hann inn fyrir línuna.

Hanna Kallmaier jafnaði metin á 65. mínútu. Hún fékk boltann í teignum og lagði hann snyrtilega framhjá Hörpu í markinu.

Lokatölur 1-1 á Akureyri. ÍBV er í 5. sæti með 13 stig en Þór/KA með 12 stig í 7. sæti.
Athugasemdir
banner