Fotbolti.net
11.07.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea ekki búið að bjóða í stjörnu Mexíkó

Julian Quinones

Julian Quinones

Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur ekki lagt fram tilboð í Julian Quinones, leikmann Al Qadsiah og mexíkóska landsliðsins. Þetta segir Fabrizio Romano á X í dag.
Miðlar í Sádi-Arabíu fullyrtu að Chelsea hefði lagt fram tilboð í hinn 29 ára gamla Quinones, sem fór á kostum með Mexíkó á HM.

Quinones skoraði fjögur mörk á mótinu og gaf eina stoðsendingu þegar Mexíkó fór alla leið í 16-liða úrslit.

Hann hefur einnig verið stórkostlegur með Al Qadsiah síðustu tvö ár, skorað 53 mörk í 59 leikjum og gefið níu stoðsendingar.

Á síðustu leiktíð var hann markahæsti leikmaður sádi-arabísku deildarinnar með 33 mörk og hafði þar betur í baráttunni gegn Ivan Toney og Cristiano Ronaldo.

Eðlilega er mikill áhugi á Quinones og höfðu miðlar í Sádi-Arabíu skrifað að Chelsea væri þegar búið að leggja fram tilboð í hann, en það er ekki rétt.

Romano segir ekkert hæft í þeim fregnum og þá hefur blaðamaðurinn Ben Jacobs sagt að Al Qadsiah hafi engan áhuga á að selja hann í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.