Lengjudeildin: Afturelding fór illa með Völsung - Óðinn með þrennu

Óðinn Bjarkason setti þrennu gegn Völsungi

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Axel Óskar skoraði fyrir Aftureldingu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur 1 - 6 Afturelding
0-1 Óðinn Bjarkason ('11 )
0-2 Bjartur Bjarmi Barkarson ('19 )
1-2 Elfar Árni Aðalsteinsson ('25 )
1-3 Óðinn Bjarkason ('29 )
1-4 Óðinn Bjarkason ('32 )
1-5 Axel Óskar Andrésson ('50 )
1-6 Róbert Agnar Daðason ('74 )
Rautt spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson, Völsungur ('69) Lestu um leikinn

Afturelding er í banastuði í Lengjudeildinni, en liðið vann 6-1 stórsigur á Völsungi á GPG-vellinum á Húsavík í dag. Þetta var fjórði sigur Mosfellinga í röð.
Óðinn Bjarkason var ekki lengi að láta til sín taka og kom Aftureldingu yfir á 11. mínútu.
Fyrirgjöf kom frá hægri og upp í vindinn. Stefán Stefánsson, markvörður Völsungs, virtist vera með boltann í teskeiðinni en lenti í árekstri við leikmenn beggja liða og missti af honum. Boltinn datt fyrir Óðinn, sem setti hann í tómt markið.
Bjartur Bjarmi Barkarson tvöfaldaði forystuna skömmu síðar. Hann fékk boltann vinstra megin í teignum og reyndi sendingu sem fór af varnarmanni Völsungs og aftur til hans. Bjartur þakkaði fyrir sig og afgreiddi boltann í fjærhornið.
Völsungur minnkaði muninn á 25. mínútu. Modoumatarr Mbye átti þá frábæran sprett upp völlinn áður en hann renndi boltanum fyrir Elfar Árna Aðalsteinsson, sem kláraði færið af yfirvegun og kom heimamönnum aftur inn í leikinn.
Það reyndist þó aðeins vara í örskamma stund því Óðinn gerði út um leikinn skömmu síðar.
Hann skoraði tvö mörk á þremur mínútum. Fyrst gerði hann annað mark sitt með laglegri afgreiðslu á 29. mínútu og síðan fullkomnaði hann þrennuna eftir sendingu frá Birki Má Sævarssyni.
Afturelding hélt áfram að keyra í síðari hálfleik. Axel Óskar Andrésson gerði fimmta markið þegar hann fékk boltann utarlega í teignum og átti skot sem lak í netið.
Róbert Agnar Daðason rak síðan síðasta naglann í kistu Völsungs aðeins sekúndum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Sannfærandi 6-1 sigur Aftureldingar, sem er á toppnum með 28 stig, fjórum stigum meira en næsta lið, og hefur nú unnið fjóra leiki í röð. Völsungur er hins vegar í næstneðsta sæti með 8 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 12 | +16 | 25 |
| 2 | Þróttur R. | 13 | +12 | 24 |
| 3 | Fylkir | 12 | +6 | 24 |
| 4 | HK | 13 | +2 | 22 |
| 5 | Vestri | 13 | +2 | 21 |
| 6 | Njarðvík | 13 | +4 | 20 |
| 7 | Leiknir R. | 13 | +1 | 19 |
| 8 | Grótta | 12 | -3 | 19 |
| 9 | ÍR | 13 | -7 | 12 |
| 10 | Grindavík | 12 | -4 | 10 |
| 11 | Völsungur | 12 | -11 | 8 |
| 12 | Ægir | 14 | -18 | 8 |