Þrír liðsfélagar Haaland mæta honum - „Sjáum til hvort það sé kostur"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Noregur og England mætast í átta liða úrslitum á HM í kvöld. Thomas Tuchel gerir tvær breytingar á liðinu frá sigrinum gegn Mexíkó í 16-liða úrslitum.
John Stones kemur í miðvörðinn og Ezri Konsa færir sig í hægri bakvörðinn þar sem Jarell Quansah er í banni. Þá kemur Noni Madueke inn fyrir Bukayo Saka. Reece James meiddist snemma á mótinu en hann gæti komið við sögu í kvöld.

„Reece James er klár í slaginn en ekki í 90 mínútur. Ég vil hafa hann sem möguleika af bekknum. Konsa hefur spilað þarna fyrir okkur, Stones hefur æft og spilaði vel í Mexíkó," sagði Tuchel.
NIco O'Reilly, Marc Guehi og Stones voru samherjar Erling Haaland, framherja norska liðsins, hjá Man City á síðustu leiktíð.
„Þeir þekkja hann. Sjáum til hvort það sé kostur því hann þekkir þá líka. Markmiðið er að stoppa sóknarlínuna þeirra, Haaland og Sörloth. Við þurfum líka líkamlegan styrk, þeir eru sterkir í föstum leikatriðum, við viljum vera sterkir í föstum leikatriðum. Við erum líka með sterkan bekk til að klára leikinn."