Fotbolti.net
11.08.21 - 20:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brynjar Björn: Hefðum getað flækt þetta

Auglýsing
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Ég er sáttur með leikinn og hugarfarið. Þetta geta verið erfiðir leikir. Við hefðum getað flækt þetta en gerðum það ekki," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir 7-1 sigur gegn KFS í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Brynjar gerði átta breytingar á byrjunarliði HK fyrir þennan leik. „Þetta voru tækifæri fyrir nokkra leikmenn að spila, það er ekki mikið af þeim. Þeir stóðu sig allir vel. Hugarfarið og nálgunin á verkefnið var mjög góð."

HK er í fallsæti í Pepsi Max-deildinni og þar er framundan leikur gegn KR-ingum.

„Deild og bikar, þetta eru mismunandi keppnir. Við fáum nokkra daga í leikinn á móti KR á mánudaginn. Það er smá hvíld og við náum að undirbúa okkur ágætlega fyrir það."

„Við skorum mörk og sköpum færi í dag. Við höfum gert það meira og minna í sumar, þó stigasöfnunin hafi ekki verið eftir því," sagði Brynjar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.