Fotbolti.net
11.09.16 - 22:34
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: Garðabæ

Óli Jó: Þeir voru farnir að tefja leikinn eldsnemma

Auglýsing
Ólafur var kátur í leikslok

Ólafur var kátur í leikslok

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals var mjög ánægður með 3-2 sigur á Stjörnunni í kvöld.

Stjarnan komst 2-0 yfir í leiknum en Valsmenn komu til baka og unnu frábæran sigur en þetta var fimmti sigur liðsins í röð.
„Þetta var frábært, við vildum vinna leikinn. Við sýndum það meira en þeir, þeir voru farnir að tefja leikinn eldsnemma í seinni hálfleik.\"

Hann segist ekki hafa orðið stressaður þó Stjörnumenn komust í 2-0.

„Ég var ekki stressaður yfir þessu. Ég vildi komast inn í hálfleik og tala aðeins við þá og sem betur fer kom mark áður en við fórum inn í hálfleikinn.\"

Sigurður Egill Lárusson þurfti að fara útaf í upphafi seinni hálfleiks vegna meiðsla en Haukur Páll fór einnig útaf í seinni hálfleik.

„Hann fékk eitthvað í nárann, sama með Hauk Pál. Hann fékk flensu.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.