Fotbolti.net
20.10.26 - 09:00
Innkastið

Bestur 2026 - Steig enn meira upp þegar mest á reyndi

Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)

Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Innkastinu var opinberað val á þeim bestu í Bestu deild karla 2026. Gylfi Þór Sigurðsson er leikmaður ársins.

Hvað er ekki búið að segja um Gylfa? Algjörlega stórkostlegur á tímabilinu og sýnir gæði sem eiga bara hreinlega ekki að sjást í þessari deild. Í liði ársins þriðja árið í röð.
Af hverju Gylfi er leikmaður ársins
TENGT EFNI

Af hverju Gylfi er leikmaður ársins

Gylfi varð Íslandsmeistari og var helsti lykilmaður liðsins á leiðinni þangað. Víkingur hefur verið að stjórna leikjum með og án bolta, og þar er Gylfi algjör lykilmaður.

Tölurnar sem blasa fyrst við eru mörkin og stoðsendingarnar, í þessu tilfelli níu mörk og tvær stoðsendingar. Gylfi hefur því komið að ellefu mörkum Víkings í Bestu deildinni á tímabilinu. Þegar gögnin eru skoðuð aðeins betur kemur hins vegar í ljós að framlag Gylfa í sókninni var meira en þessar 11 aðgerðir gefa til kynna.

Hann var með 10,38 xG+xA, 15. hæsta gildi deildarinnar, og skapaði níu stór færi, sem var 16. mest í deildinni.

Sérstaklega vekur athygli 5,82 væntar stoðsendingar hans. Gylfi hefur aðeins gefið tvær stoðsendingar en gæðin á færunum sem hann skapaði fyrir samherja voru töluvert meiri. Stoðsendingatalan segir því ekki alla söguna um hversu mikið hann skapaði af færum fyrir liðið sitt.

Níu mörk og tvær stoðsendingar eru því upphafið að tölfræðisögunni um Gylfa, en ekki endirinn. Þessi tölfræði er líka athyglisverð miðað við hversu aftarlega Gylfi hefur verið að spila hjá Víkingum í sumar. Hann hefur ekki bara verið mikilvægur þegar Víkingur er með boltann heldur einnig þegar þarf að vinna hann til baka og í varnarleiknum. Vinnusemi hans er einn af hans bestu kostum.

Þegar Íslandsmeistaratitillinn var í húfi var Gylfi sá sem steig upp og hafði áhrif á leikinn á báðum endum vallarins. Einn af hans mestu kostum líka er að hann stígur upp þegar mest á reynir. Hann hefur bara orðið betri eftir því sem liðið hefur á tímabilið.

37 ára og spilar gríðarlega mikið
Það er auðvelt að gleyma aldri Gylfa þegar tölurnar úr tímabilinu eru skoðaðar. Hann er orðinn 37 ára, en hefur samt spilað 1645 mínútur í Bestu deildinni í sumar.

Það er fjórði mesti mínútufjöldinn hjá Íslandsmeisturum Víkings og segir sitt um hversu mikilvægt hlutverk hann hefur haft. Þetta skiptir máli þegar frammistaða hans er metin. Gylfi hefur ekki aðeins náð að skila sínu í styttri köflum eða gegn ákveðnum mótherjum, heldur hefur hann verið stór hluti af liði sem hefur farið í gegnum heilt deildartímabil og endað sem Íslandsmeistari með yfirburðum.

37 ára gamall hefur hann því ekki aðeins haldið sér inni í liðinu, hann hefur verið einn af þeim sem Víkingur treystir hvað mest á.

Það er líklega erfitt að finna eina tölfræði sem sannar að Gylfi Þór Sigurðsson sé leikmaður ársins. Röksemdin liggur frekar í því hversu marga þætti leiksins hann hefur áhrif á og hvernig það passar inn í það sem hefur gert Víking að langbesta liði Bestu deildarinnar.

Sjá einnig:
Bestur 2025 - Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur)
Bestur 2024 - Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Bestur 2023 - Birnir Snær Ingason (Víkingur)
Bestur 2022 - Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Bestur 2021 - Kári Árnason (Víkingur)
Bestur 2020 - Steven Lennon (FH)
Bestur 2019 - Óskar Örn Hauksson (KR)
Bestur 2018 - Patrick Pedersen (Valur)
Bestur 2017 - Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík)
Bestur 2016 - Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Bestur 2015 - Emil Pálsson (FH)
Bestur 2014 - Ingvar Jónsson (Stjarnan)
Bestur 2013 - Baldur Sigurðsson (KR)
Bestur 2012 - Freyr Bjarnason (FH)
Bestur 2011 - Hannes Þór Halldórsson (KR)
Bestur 2026 - Steig enn meira upp þegar mest á reyndi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bestur 2026 - Steig enn meira upp þegar mest á reyndi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bestur 2026 - Steig enn meira upp þegar mest á reyndi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bestur 2026 - Steig enn meira upp þegar mest á reyndi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bestur 2026 - Steig enn meira upp þegar mest á reyndi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.