Lið vikunnar í enska - Velkominn til baka

Markvörður: Bart Verbruggen (Brighton) - Stóð sig vel og hélt hreinu í stórsigri Brighton á Crystal Palace.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Levi Colwill (Chelsea) - Í fyrsta sinn sem Chelsea heldur hreinu síðan í janúar, Colwill steig upp þegar hinn ungi Mike Penders fór í búrið og átti góðan dag.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Gabriel (Arsenal) - Englandsmeistararnir buðu ekki upp á neina flugeldasýningu í 1-0 sigri sínum á Forest á sunnudag en þeir vörðust vel og þar var Gabriel í broddi fylkingar.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Luka Vuskovic (Brighton) -Hélt hreinu gegn Palace og steig varla feilspor. Hefur verið frábær á tímabilinu.

Mynd: Brighton

Varnarmaður: Diogo Dalot (Manchester United) - Spilaði í vinstri bakverði og var upp og niður vænginn eins og rennilás. Ekki sá besti gæðalega séð en gerir upp fyrir það með dugnaði.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Sander Berge (Fulham) - Steig upp á heldur betur réttum tíma, í sex stiga leik gegn Hull, og fær því kallið inn á miðsvæðið.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Diego Gomez (Brighton) - Skoraði frá miðju. Orð eru óþörf.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Pedro Neto (Chelsea) - Skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á Everton, auðvelt val á manni leiksins þarna.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Johan Manzambi (Aston Villa) - Leikmaður mánaðarins til þessa og skoraði eina mark leiksins gegn Newcastle. Þvílíkt efni.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James Maddison (Tottenham) - Fyrsti byrjunarliðsleikur Maddison í eitt og hálft ár og sá stimplaði sig inn með glæsilegu marki. Velkominn til baka.

Mynd: EPA

Framherji: Erling Haaland (Manchester City) - Skoraði tvö gegn Ipswich og var óheppinn að ná ekki þrennunni. Í liði vikunnar í þriðja sinn á tímabilinu og verður eflaust tíu sinnum í viðbót.

Mynd: EPA

Stjórinn: Fabian Hurzeler (Brighton) - Hann er að gera frábæra hluti með Brighton og er með liðið í 3. sæti deildarinnar. Fóru illa með erkifjendurna í Crystal Palace um helgina og rasskelltu þá, 5-0.

Mynd: EPA


Mynd: BBC
