20.10.26 - 09:20
Elvar Geir Magnússon
Liverpool og Man Utd hafa áhuga á Nmecha

Nmecha í leik með Dortmund.

Mynd: EPA

Trent íhugar framtíðina.

Mynd: EPA

Hurzeler á hliðarlínunni.

Mynd: EPA

Nmecha í leik með Dortmund.

Mynd: EPA

Það er önnur Meistaradeildarvika svo það er enginn skortur á fótboltaleikjum um þessar mundir. Hefjum daginn á góðum slúðurpakka í boði Powerade. Ráðlagður dagskammtur.
Liverpool og Manchester United eru meðal nokkurra félaga í ensku úrvalsdeildinni sem hafa áhuga á þýska miðjumanninum Felix Nmecha (26) hjá Borussia Dortmund. Liverpool lítur á Nmecha, sem metinn er á 84 milljónir punda, sem valkost í stað enska landsliðsmannsins Alex Scott (23) hjá Bournemouth. (Teamtalk)
Argentínski miðjumaðurinn Emiliano Buendía (29) er nálægt því að ganga frá nýjum samningi við Aston Villa eftir að viðræður hafa gengið vel. (Mail)
Enski hægri bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold (28) er að velta fyrir sér framtíð sinni hjá Real Madrid, en hann er orðinn óánægður með hversu lítinn spiltíma hann hefur fengið. Fyrrum félag hans, Liverpool, er eitt af mörgum sem fylgjast með stöðu mála. (Teamtalk)
Brottför JJ Gabriel (26) frá Manchester United er yfirvofandi. Real Madrid hefur lagt fram myndarlegt tilboð í leikmanninn unga en Barcelona og Bayern München hafa einnig sýnt honum áhuga. (Sport)
Manchester United fylgist með brasilíska bakverðinum Wesley (23) sem leikur með Roma, með möguleg félagaskipti í janúar í huga. (Football Insider)
Rio Ngumoha (18) hefur dregið úr líkunum á mögulegum félagaskiptum til Arsenal. Enski kantmaðurinn segir að viðræður um framlengingu samnings hans við Liverpool gangi vel. (Metro)
Sergio Ramos (40), fyrrum miðvörður Real Madrid og spænska landsliðsins, skoðar nú möguleikann á að snúa aftur í La Liga en Getafe hefur áhuga á að fá hann til sín. (FourFourTwo)
Manchester United gæti þurft að keppa við Juventus um að ráða ítalska stjórann ??Antonio Conte (57) ef félagið ákveður að reka núverandi stjóra, Michael Carrick. (Talksport)
Sagt er að Brighton taki vangaveltum um framtíð stjórans Fabian Hurzeler (33) með rólegheitum eftir glæsilega byrjun á tímabilinu. Þessi þýski stjóri hefur verið orðaður við Manchester United undanfarnar vikur. (Football Insider)