Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 11. september 2020 22:23
Aksentije Milisic
Lengjudeild-kvenna: Augnablik lagði ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augnablik 2-1 ÍA
0-1 Erna Björt Elíasdóttir ('11)
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('23)
2-1 Margrét Lea Gísladóttir ('88)

Augnablik og ÍA mættust í Lengjudeild kvenna í kvöld en leikið var á Kópavogsvelli.

ÍA er í fallbaráttu á meðan Augnablik siglir frekar lignan sjó í deildinni. ÍA komst yfir á 11. mínútu leiksins þegar Erna Björt Elíasdóttir skoraði. Tólf mínútum síðar jafnaði Margrét Bryja Kristinsdóttir fyrir heimastúlkur og staðan jöfn 1-1 í hálfleik.

Allt var í járnum fram að 88. mínútu en þá skoraði Margrét Lea Gísladóttir sigurmarkið fyrir Augnablik. Mikilvægt mark sem kemur Augnablik lengra frá fallsvæðinu.

ÍA er í 8. sæti deildarinnar tveimur stigum frá fallsæti en Augnablik í því sjötta, 8 stigum frá fallsæti.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner