16.09.26 - 10:25
Brynjar Ingi Erluson
Átti að fá á sig þrjú mörk eða borga skuld - Fjölskyldunni hótað lífláti

Manuel Ferrel, markvörður Guabira, fékk á sig þrjú mörk og var síðan skipt af velli

Mynd: Guariba

Leonardo Guabira, þjálfari Guabira

Mynd: Guabira

Leonardo Eguez, þjálfari bólivíska liðsins Guabira, segir fjölskyldu markvarðar liðsins hafa verið hótað lífláti fyrir 6-0 tapið gegn Always Ready. Hann segir liðsfélagana hafa vitað af hótununum og því ekki viljað spila af fullum krafti þar sem hugur þeirra var hjá markverðinum.
Eguez skildi hvorki upp né niður í frammistöðu sinna manna. Liðið lék afar illa og framherji þess klúðraði meðal annars dauðafæri þar sem virtist nánast erfiðara að klúðra en skora.
Sami leikmaður bað síðan um skiptingu skömmu síðar og sagðist ekki ráða við andlega álagið.
Þegar Always Ready var komið í 3-0 forystu eftir rúman hálftíma bað fyrirliðinn Ricky Anez þjálfarann um að taka markvörðinn Manuel Ferrel af velli og varð Eguez við þeirri beiðni.
Í hálfleik sauð síðan upp úr. Eguez var öskuillur yfir frammistöðu liðsins og skildi ekki hvað væri í gangi fyrr en leikmennirnir sögðu honum frá ástæðunni.
Samkvæmt frásögn þeirra skuldaði Ferrel mönnum peninga sem höfðu hótað móður hans og fjölskyldu lífláti. Skilaboðin til markvarðarins áttu að hafa verið skýr: annað hvort greiddi hann skuldina eða hann sæi til þess að fá á sig þrjú mörk í leiknum.
Leikmennirnir fundu til með Ferrel og vantaði viljann til að reyna sitt allra besta. Always Ready vann leikinn að lokum 6-0.
Eguez greindi frá málinu eftir leik og er það nú til rannsóknar hjá bólivíska fótboltasambandinu. Formleg kvörtun hefur verið lögð fram.
„Margir hafa spurt mig af hverju ég lagði ekki fram kvörtun fyrr, en á svona augnabliki veit maður ekki hvað maður á að gera. Ég varð fyrst að reyna að róa leikmennina og sagði þeim að við myndum leggja fram kvörtun eftir leikinn,“ sagði Eguez.
Öll mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Varnarvinnan í fyrsta markinu vekur athygli og sömuleiðis markvarsla Ferrel í öðru og þriðja markinu.