Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. október 2021 13:54
Elvar Geir Magnússon
Liechtenstein án lykilmanna í kvöld
Icelandair
Daniel Kaufmann reynir að stöðva Hólmbert Aron í leiknum í Liechtenstein fyrr á árinu.
Daniel Kaufmann reynir að stöðva Hólmbert Aron í leiknum í Liechtenstein fyrr á árinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikið hefur verið rætt og ritað um fjarveru lykilmanna í íslenska landsliðinu fyrir leikinn gegn Liechtenstein í kvöld.

Andstæðingar okkar verða einnig án lykilmanna en bæði mun vanta þeirra reyndasta varnarmann og markahæsta sóknarmanninn sem valdir voru í hópinn.

Varnarmaðurinn Daniel Kaufmann sem leikið hefur 64 landsleiki tekur út leikbann og sóknarmaðurinn Dennis Salanovic sem skorað hefur 4 landsliðsmörk er að glíma við meiðsli og ferðaðist ekki með til Íslands.

Noah Frommelt og Martin Marxer voru kallaðir inn í hópinn hjá Liechtenstein í þeirra stað.

Það er óhætt að tala um skyldusigur þegar Ísland mætir Liechtenstein í kvöld en mótherjar okkar sitja í 188. sæti heimslistans. Ísland vann 4-1 útisigur í Liechtenstein fyrr á árinu, leikmannahópur Íslands er reyndar mikið breyttur frá þeim leik.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner