Fotbolti.net
13.09.26 - 13:26
Brynjar Ingi Erluson

Guðný sneri aftur í sigri Kristianstad - Thelma Karen lagði upp

Guðný er mætt aftur á völlinn

Guðný er mætt aftur á völlinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Guðný Árnadóttir er mætt aftur á völlinn fimm mánuðum eftir að hafa eignast frumburð sinn en því var fagnað með 2-0 sigri Kristianstad á Djurgården.
Landsliðskonan tilkynnti í október á síðasta ári að hún ætti von á barni sem kom síðan í heiminn í apríl.

Hún sneri aftur á völlinn í dag þegar hún kom inn á þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka. Það eru góð tíðindi fyrir hana, Kristianstad og íslenska landsliðið.

Alexandra Jóhannsdóttir byrjaði hjá Kristianstad en Elísa Lana Sigurjónsdóttir var á bekknum. María Catharina Gros Ólafsdóttir var í byrjunarliði Djurgården.

Kristianstad er í 4. sæti með 28 stig en Djurgården í 10. sæti með 18 stig. Nik Chamberlain, fyrrum þjálfari Breiðabliks og Þróttar, stýrir Kristianstad.

Thelma Karen Pálmadóttir kom inn af bekknum og lagði upp mark í 4-0 sigri sænsku meistaranna í Häcken á Vittsjö. Hún lagði upp þriðja mark liðsins og var það hennar þriðja stoðsending á tímabilinu.

Häcken er með fimm stiga forystu á toppnum.

Diljá Ýr Zomers byrjaði hjá Brann sem vann 3-0 sigur á Lyn í norsku úrvalsdeildinni. Brenna Lovera, fyrrum leikmaður ÍBV og Selfoss, skoraði tvö mörk fyrir Brann.

Brann er á toppnum með 41 stig, fjórum stigum meira en Álasund sem er í öðru sæti.

Sóley Edda Ingadóttir þreytti þá frumraun sína með Molde sem tapaði 1-0 fyrir Hönefoss. Sóley kom til Molde frá Val á dögunum og lék síðasta stundarfjórðunginn í dag. Molde er í 7. sæti með 18 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.