Fotbolti.net
13.09.26 - 12:29
Brynjar Ingi Erluson

Fyrsta stoðsending Ágústs í Hollandi - Lið Hólmberts án sigurs í sex mánuði

Ágúst Orri lagði upp fyrir Excelsior

Ágúst Orri lagði upp fyrir Excelsior

Canon

Mynd: Excelsior

Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp sitt fyrsta mark í hollensku úrvalsdeildinni með Excelsior í annars svekkjandi 2-1 tapi gegn Utrecht í dag.
Ágúst kom til Excelsior frá Breiðabliki í síðasta mánuði og hefur komið sér vel inn í hlutina á stuttum tíma.

Hann lagði upp sitt fyrsta mark í hollensku deildinni þegar hann kom boltanum á Aymen Sliti sem jafnaði metin tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Utrecht tókst þó að skemma ágætan dag Ágústs og Excelsior með sigurmarki í uppbótartíma. Þetta var fyrsta tap Excelsior í tæpan mánuð en liðið er í 6. sæti deildarinnar með tíu stig eftir sex umferðir.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn af bekknum hjá Gwangju sem gerði 1-1 jafntefli við Anyang í suður-kóresku deildinni.

Framherjinn fékk ekki mikinn tíma til að hafa áhrif á leikinn en hann kom inn á þegar níu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Gwangju er á botninum með 14 stig og hefur ekki unnið leik síðan í mars. Það er nánast ómögulegt fyrir liðið að bjarga sér frá falli í gegnum deildina en öll von er þó ekki úti þar sem Gwangju getur farið í umspil gegn liði úr B-deildinni um sæti í efstu deild.

Ástæðan er sú að Gimcheon Sangmu, sem er í næstneðsta sæti, fer niður í B-deildina sama hvað. Gimcheon er herlið og samningur hersins við borgina er að renna út. Liðið verður því sent niður en borgin íhugar að stofna sitt eigið fótboltalið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.