Fotbolti.net
12.09.26 - 16:41
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Selfoss í Lengjudeildina (Staðfest) - Ótrúleg björgun Vogamanna

Selfoss spilar í Lengjudeildinni á næsta ári

Selfoss spilar í Lengjudeildinni á næsta ári

Canon

Mynd: Selfoss

Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeild karla með 2-1 sigri á KFG í lokaumferð 2. deildar í dag. KFG féll hins vegar í 3. deild þar sem Þróttur Vogum vann Magna 2-1 á Vogaídýfuvellinum.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 1 KFG
Selfyssingar þurftu aðeins stig til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni en gerðu gott betur og unnu 2-1 sigur á KFG þrátt fyrir að leika manni færri allan síðari hálfleikinn.

Það létti á heimamönnum þegar Brynjar Bergsson kom þeim yfir á 13. mínútu. Frosti Brynjólfsson tók hornspyrnu sem Viðar Örn Kjartansson flikkaði aftur fyrir sig og Brynjar skallaði boltann í autt netið.

Tæpum tuttugu mínútum síðar var Brynjar aftur á ferðinni þegar Daði Kolviður Einarsson sendi fyrir á fjærstöngina og hann skoraði sitt annað skallamark.

Það fór hins vegar um Selfyssinga undir lok fyrri hálfleiks þegar Filip Ivan Sabatti, markvörður liðsins, felldi leikmann KFG rétt utan teigs og fékk beint rautt spjald. Brynjar fór af velli fyrir varamarkvörðinn Rökkva Raf Agnesarson, sem þurfti strax að sækja boltann í netið eftir að Franz Bergmann Heimisson setti aukaspyrnuna í nær samskeytin.

KFG hafði ekki síður mikið að keppa enda í harðri fallbaráttu, en gestunum tókst ekki að nýta liðsmuninn til að jafna. Selfyssingar héldu út og fögnuðu sæti í Lengjudeildinni eftir frábært sumar á meðan KFG féll í 3. deild.

Viðar Örn Kjartansson endaði markahæstur í deildinni með 21 mark. Frábært sumar hjá Selfyssingnum og stoðsending frá honum í dag.

Kári gerði sitt í baráttunni um að fara upp og vann 4-0 sigur á Haukum, sem höfðu þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Það dugði þó ekki þar sem Selfoss kláraði sitt og Káramenn leika því áfram í 2. deild.

Víkingur Ó vann KFA 4-0 og Dalvík/Reynir lagði fallið lið Hvíta riddarans 4-1 þar sem Áki Sölvason skoraði tvö mörk fyrir heimamenn.

Fjölnir vann Kormák/Hvöt 2-1 og Þróttur V. bjargaði sér frá falli með 2-1 sigri á Magna. Sigurmark Vogamanna kom nokkrum mínútum fyrir leikslok og reyndist gulls ígildi en það var Valur Þór Hákonarson sem gerði það.

Þar með fór það upp úr fallsæti og sendi KFG niður.

Selfoss 2 - 1 KFG
1-0 Brynjar Bergsson ('13 )
2-0 Brynjar Bergsson ('31 )
2-1 Franz Bergmann Heimisson ('44 )
Rautt spjald: Filip Ivan Sabatti, Selfoss ('42) Lestu um leikinn

Þróttur V. 2 - 1 Magni
1-0 Eyþór Orri Ómarsson ('45 )
1-1 Ólafur Jóhann Steingrímsson ('78 )
2-1 Valur Þór Hákonarson ('84 )

Kári 4 - 0 Haukar
1-0 Albert Hafsteinsson ('2 )
2-0 Stefán Logi Sigurjónsson ('27 )
3-0 Jóhannes Breki Harðarson ('84 )
4-0 Robert Elli Vífilsson ('90 )

Víkingur Ó. 4 - 0 KFA
1-0 Björn Henry Kristjánsson ('23 )
2-0 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('55 )
3-0 Gabriel Þór Þórðarson ('81 )
4-0 Asmer Begic ('88 )

Dalvík/Reynir 4 - 1 Hvíti riddarinn
1-0 Hektor Bergmann Garðarsson ('31 )
2-0 Atli Þór Sindrason ('40 )
3-0 Áki Sölvason ('47 )
3-1 Jordan Chase Tyler ('57 )
4-1 Áki Sölvason ('65 )

Kormákur/Hvöt 1 - 2 Fjölnir
1-0 Bilal Kamal ('5 )
1-1 Federico Ignacio Russo Anzola ('38 , sjálfsmark)
1-2 Bjarni Þór Hafstein ('78 )
KFG er fallið

KFG er fallið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þróttur Vogum bjargaði sér með sigri á Magna

Þróttur Vogum bjargaði sér með sigri á Magna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar22+2347
2Selfoss22+1945
3Kári22+2742
4Dalvík/Reynir22031
5Víkingur Ó.22-831
6Fjölnir22+330
7KFA22+629
8Kormákur/Hvöt22+427
9Magni22-1925
10Þróttur V.22-923
11KFG22-2022
12Hvíti riddarinn22-2617
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.