Fotbolti.net
13.09.26 - 10:29
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal horfir til Nico Paz - Leikmaður Fiorentina í sigtinu hjá Villa og Liverpool

Nico Paz til Arsenal?

Nico Paz til Arsenal?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Argentínskur landsliðsmaður er á ratsjá Arsenal, Liverpool og Aston Villa fylgjast með leikmanni Fiorentina og Lukas Nmecha íhugar að yfirgefa Leeds þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið. Þetta og fleira er í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Englandsmeistarar Arsenal fylgjast með stöðu argentínska sóknartengiliðsins Nico Paz (22) hjá Como, en Real Madrid hefur endurkaupsrétt á honum fyrir 80 milljónir evra. (ElDesmarque)

Liverpool og Aston Villa eru meðal félaga sem hafa áhuga á ítalska miðjumanninum Cher Ndour (22) hjá Fiorentina. (Caught Offside)

Sunderland hefur ekki gefist upp á að fá Geny Catamo (25) frá Sporting eftir að hafa reynt árangurslaust að kaupa hann í sumarglugganum. (Record)

Mónakó telur sig geta fengið 60,1 milljón punda fyrir senegalska miðjumanninn Lamine Camara (22) á næsta ári, en Chelsea og Liverpool höfðu áhuga undir lok sumargluggans. Hann var nálægt því að ganga til liðs við Chelsea áður en Mónakó hætti við á síðustu stundu. (Teamtalk)

Þýski framherjinn Lukas Nmecha (25) vill yfirgefa Leeds eftir tímabilið fái hann ekki meiri spilatíma. (Football Insider)

Celtic fylgist með Luke Chambers (22), vinstri bakverði Liverpool, og gæti reynt að fá hann í janúarglugganum. (Football Insider)

Fílabeinsstrendingurinn Wilfried Zaha (33) gæti gengið til liðs við Malaga eftir að hafa yfirgefið Galatasaray í sumar. (Mundo Deportivo)

Raphinha (29) er samningsbundinn Barcelona til 2028 en Spánarmeistararnir íhuga að bjóða honum nýjan samning til 2030. (AS)

Barcelona hefur einnig gengið frá nýjum samningi við egypska framherjann Hamza Abdelkarim (18) til 2030, með 150 milljóna evra riftunarákvæði. (Sport)

Arsenal og Chelsea standa fremst í baráttunni um Gabriel Rajkovic (15), leikmann Vålerenga í Noregi. (Teamtalk)
Liverpool og Aston Villa vilja Ched Ndour

Liverpool og Aston Villa vilja Ched Ndour

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.