13.09.26 - 09:38
Elvar Geir Magnússon
Fótboltaleik í Eistlandi hætt vegna gruns um veðmálasvindl

Fótboltavöllur í Eistlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fótboltavöllur í Eistlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Í liðinni viku var leik FC Tallinn og Maardu Linnameeskond í eistnesku B-deildinni hætt á 78. mínútu vegna gruns um hagræðingu úrslita.
Þrír einstaklingar tengdir Maardu hafa verið settir í bann en málið er í rannsókn.
Þrír einstaklingar tengdir Maardu hafa verið settir í bann en málið er í rannsókn.
Maardu komst 2-1 yfir í leiknum en fékk svo þrjú mörk á sig á sjö mínútum auk þess að fá á sig vítaspyrnu. Dómari leiksins, Jagnar Jakobson, taldi að verið væri að hagræða úrslitum og flautaði leikinn af. Fyrir leikinn hafði eistneska fótboltasambandinu borist upplýsingar um möguleika á að úrslitum í leiknum yrði hagrætt.
Það hefur tvisvar áður gerst í eistneskum fótbolta að leikur hefur verið stöðvaður vegna grunsemda um veðmálasvindl.
Það hefur tvisvar áður gerst í eistneskum fótbolta að leikur hefur verið stöðvaður vegna grunsemda um veðmálasvindl.
