Fotbolti.net
13.09.26 - 11:44
Brynjar Ingi Erluson

Sagðist aldrei ætla að snúa aftur en mun stýra liðinu á morgun

Sagðist aldrei ætla að snúa aftur en mun stýra liðinu á morgun
Canon

Mynd: EPA

Ismail Kartal, þjálfari Fenerbahce í Tyrklandi, sagði starfi sínu lausu eftir 1-1 jafnteflið gegn Roma í Meistaradeildinni á dögunum og hét því að snúa aldrei aftur. Nú er hins vegar allt útlit fyrir að hann snúi aftur eftir allt saman.
Annar þjálfari segir af sér nokkrum mínútum eftir leik - „Mun aldrei snúa aftur“
TENGT EFNI

Annar þjálfari segir af sér nokkrum mínútum eftir leik - „Mun aldrei snúa aftur“

Kartal er greinilega ósáttur með byrjun tímabilsins en Fenerbahce hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur í deildinni.

Jafnteflið gegn Roma virðist þó hafa gert útslagið, þótt það hafi í sjálfu sér ekki verið svo slæm úrslit.

Kartal tilkynnti á blaðamannafundi að hann væri hættur og sagðist aldrei ætla að snúa aftur til félagsins. Aziz Yildirim, forseti Fenerbahce, svaraði hins vegar í kjölfarið og sagðist ekki ætla að samþykkja uppsögn þjálfarans.

Fenerbahce hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem staðfest er að Kartal haldi áfram störfum og stýri liðinu gegn Gaziantep á morgun.

Það er því heldur betur dramatík í þjálfarabransanum í Tyrklandi. Kartal er alla vega mættur aftur til starfa og verður fróðlegt að sjá hvað gerist ef Fenerbahce tapar stigum á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.