13.09.26 - 12:15
Brynjar Ingi Erluson
Sabitzer fylgir fordæmi Courtois og tekur sér frí frá landsliðinu

Marcel Sabitzer mun ekki spila með Austurríki í Þjóðadeildinni

Mynd: EPA

Austurríski landsliðsmaðurinn Marcel Sabitzer hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í landsliðið fyrir leiki liðsins í Þjóðadeildinni. Þetta staðfesti hann og Ralf Rangnick, þjálfari landsliðsins, í dag.

TENGT EFNI
Courtois tekur sér frí frá landsliðinu - „Sagðist ekki geta lofað mér sæti þegar ég sný aftur“
Sabitzer fylgir þar fordæmi belgíska markvarðarins Thibaut Courtois sem hefur einnig greint frá því að hann verði ekki til taks í Þjóðadeildinni en muni íhuga að snúa aftur fyrir undankeppni Evrópumótsins.
„Síðustu tvö ár hafa tekið verulega á. Frá Evrópumótinu árið 2024, HM félagsliða og HM í sumar hef ég spilað þrjú tímabil í röð. Á þessu tímabili er dagskráin í þýsku deildinni þétt, auk bikarsins og Meistaradeildarinnar. Ég er 32 ára gamall og vil spila á hæsta stigi fótboltans í mörg ár til viðbótar og þarf því að fara vel með orkuna. Þess vegna hef ég, eftir opnar og traustar viðræður við landsliðsþjálfarann, ákveðið að taka mér frí. Við munum síðan ræða hvort ég snúi aftur í landsliðið fyrir undankeppni EM,“ sagði Sabitzer.
Leikjadagskráin verður sífellt þéttari með tilkomu nýrra keppna og fjölgun leikja og kæmi ekki á óvart ef fleiri leikmenn tækju sér frí frá Þjóðadeildinni á næstu vikum.
Rangnick, þjálfari austurríska landsliðsins, segist skilja ákvörðun Sabitzer vel.
„Við Marcel ræddum opinskátt um framtíðina fyrir heimsmeistaramótið og hann viðraði við mig sínar skoðanir sem ég skil fullkomlega. Það er auðvitað synd að þurfa að spila án hans í Þjóðadeildinni en að henni lokinni munum við í sameiningu ákveða næstu skref fyrir undankeppni EM. Ég er alla vega ánægður með að hann verði til taks ef við þurfum á honum að halda. Það sýnir mér hversu mikilvægt landsliðið er fyrir honum,“ sagði Rangnick.
Sabitzer er á mála hjá Borussia Dortmund í Þýskalandi og hefur spilað í öllum þremur deildarleikjum liðsins á tímabilinu, auk eins leiks í bikarnum og eins í Meistaradeildinni.

?????? UEFA Nations League ohne Marcel Sabitzer
— ÖFB - oefb.at (@oefb1904) September 13, 2026
???????????????? Rückkehr zur UEFA EURO 2028 Quali nicht ausgeschlossen
Der 32-Jährige hat sich dazu entschlossen, nach 102 Länderspielen und 27 Toren im Nationalteam zumindest eine Pause einzulegen.
Mehr ???? https://t.co/G0IglepEuM pic.twitter.com/Q83PufbCK7