13.09.26 - 14:03
Brynjar Ingi Erluson
Ísak með stoðsendingu í svekkjandi jafntefli

Ísak Snær lagði upp eina mark Lyngby

Mynd: Lyngby

Ísak Snær lagði upp eina mark Lyngby

Mynd: Lyngby
Ísak Snær Þorvaldsson lagði upp eina mark Lyngby sem gerði 1-1 jafntefli við botnlið SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Framherjinn lagði upp markið snemma leiks gegn SönderjyskE en gestirnir jöfnuðu í síðari hálfleik.
Þetta var aðeins annað stig SönderjyskE á tímabilinu en liðið var án Brynjars Inga Bjarnasonar.
Daníel Freyr Kristjánsson kom inn af bekknum hjá Lyngby en Davíð Helgi Aronsson var ónotaður varamaður. Lyngby er með sjö stig en SönderjyskE situr á botninum með tvö.
Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn af bekknum hjá Viborg sem gerði 1-1 jafntefli við Silkeborg. Þetta var fyrsti deildarleikur Valgeirs síðan hann gekk í raðir félagsins frá Fortuna Düsseldorf í sumar.
Viborg er í 4. sæti með 14 stig.
Júlíus Magnússon byrjaði hjá Elfsborg sem marði 1-0 sigur á Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni. Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum en Gabríel Snær Gunnarsson var ónotaður varamaður.
Elfsborg er í 4. sæti með 34 stig, fjórum stigum frá Evrópusæti.
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í Herthu Berlín eru á toppnum eftir 3-1 sigur á Osnabrück í þýsku B-deildinni. Jón Dagur var í byrjunarliðinu og virðist hafa fest sig þar í sessi eftir að hafa snúið aftur til félagsins eftir góða lánsdvöl hjá Brann.