Fotbolti.net
12.09.26 - 17:16
Brynjar Ingi Erluson

Í fyrsta sinn í fimm ár hjá Liverpool

Liverpool hefur ekki tekist að ná í sigur í síðustu fjórum heimaleikjum í ensku úrvalsdeildinni

Liverpool hefur ekki tekist að ná í sigur í síðustu fjórum heimaleikjum í ensku úrvalsdeildinni

Canon

Mynd: EPA

Liverpool gerði markalaust jafntefli við Fulham á Anfield í dag og bíður því enn eftir fyrsta heimasigri sínum í deildinni á tímabilinu.
England: Varnarleikur Chelsea til vandræða - Markalaust á Anfield
TENGT EFNI

England: Varnarleikur Chelsea til vandræða - Markalaust á Anfield

Liverpool hefur gert jafntefli í báðum heimaleikjum sínum í deildinni á tímabilinu, en fyrir leikinn í dag gerði liðið 2-2 jafntefli við Nottingham Forest á Anfield.

Síðasti heimasigur liðsins í deildinni kom gegn Crystal Palace í apríl á síðustu leiktíð. Liverpool gerði síðan 1-1 jafntefli við bæði Brentford og Chelsea í síðustu tveimur heimaleikjum tímabilsins og hefur því ekki unnið í fjórum deildarleikjum í röð á Anfield.

Þetta er í fyrsta sinn í fimm ár sem Liverpool gengur svo lengi án heimasigurs í deildinni. Þá var biðin reyndar átta leikir og þar af tapaði liðið sex í röð.

Verkefnin framundan á Anfield verða ekki auðveld, en næstu fimm gestir Liverpool í deildinni eru Manchester City, Brighton, Arsenal, Manchester United og Sunderland.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.