13.09.26 - 11:29
Brynjar Ingi Erluson
Foreldrar geta fengið svarta spjaldið fyrir óviðeigandi framkomu

Mynd: Fótboltasamband Rúmeníu

Mynd: Fótboltasamband Rúmeníu
Rúmenska fótboltasambandið hefur tekið upp svarta spjaldið til þess að tækla vandamál tengd hegðun foreldra og annarra áhorfenda á leikjum unglingaliða þar í landi.
Rúmenar ætla að prófa svarta spjaldið hjá U16 og U17 ára liðum á þessu tímabili en því er ætlað að taka á foreldrum og öðrum æstum stuðningsmönnum á kappleikjum.
Þetta er í fyrsta sinn sem rúmenska fótboltasambandið grípur til slíks úrræðis gegn áhorfendum.
Markmið sambandsins er skýrt. Með þessu á að draga úr óþarfa pressu á unga leikmenn og dómara sem þurfa oft að þola hróp og köll frá foreldrum og öðrum stuðningsmönnum úr stúkunni.
Dómarinn getur stöðvað leik eftir fyrsta brot og gefið foreldrum eða öðrum áhorfendum aðvörun. Í kjölfarið verður öllum áhorfendum tilkynnt um ástæðu þess að leikurinn var stöðvaður.
Haldi hegðunin áfram verður gert tíu mínútna hlé á leiknum og liðin send inn í búningsklefa. Þjálfurum gefst þá kostur á að reyna að róa mannskapinn í stúkunni.
Dugi það ekki til á dómarinn ekki annarra kosta völ en að sýna viðkomandi áhorfendum eða foreldrum svarta spjaldið og flauta leikinn af.
Samkvæmt sambandinu geta þeir sem gerast sekir um slíka hegðun fengið sekt upp á 2.000 til 4.000 evrur og jafnframt átt yfir höfði sér eins til þriggja ára bann frá fótboltaleikjum.