Fotbolti.net
13.09.26 - 11:35
Brynjar Ingi Erluson

Alvarez ekki með gegn Orra og félögum

Alvarez ekki með gegn Orra og félögum
Canon

Mynd: EPA

Argentínski sóknarmaðurinn Julian Alvarez verður ekki með Atlético Madríd gegn Real Sociedad í La Liga í kvöld, en þetta staðfestir spænska félagið í dag.
Alvarez vann sér aftur sæti í byrjunarliði Atlético fyrir leikinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni eftir viðburðaríkar vikur þar sem hann reyndi að komast frá félaginu.

Atlético vildi ekki selja hann til Barcelona og sjálfur hafði Alvarez engan áhuga á að fara til Englands. Niðurstaðan varð því sú að hann hélt kyrru fyrir.

Hann verður hins vegar ekki með Atlético gegn Sociedad í kvöld og ferðaðist ekki með liðinu til San Sebastian.

Samkvæmt félaginu fann Alvarez fyrir vöðvameiðslum og verður Atlético því án eins síns besta leikmanns gegn Orra Steini Óskarssyni og félögum.

„Læknateymið hefur útilokað þátttöku Alvarez fyrir leikinn í dag þangað til við fáum niðurstöður úr frekari rannsóknum,“ segir í yfirlýsingu Atlético.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.