13.09.26 - 09:55
Ívan Guðjón Baldursson
Sungu nafn Diogo Jota til að taka Neves úr jafnvægi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ógeðsleg hegðun stuðningsmanna Al-Taawon í Sádi-Arabíu náðist á myndband þegar liðið tók á móti stórveldi Al-Hilal í gær.

TENGT EFNI
Martinelli og Watkins með sýningu - Ronaldo slakur
Portúgalski miðjumaðurinn Rúben Neves var í byrjunarliði Al-Hilal og fönguðu áhorfendur athygli hans í upphituninni þegar þeir tóku að syngja nafn Diogo Jota.
Neves er fyrrum landsliðsfélagi og góðvinur Diogo Jota sem lést í bílslysi í fyrrasumar. Dauðsfall hans olli mikilli sorg í fótboltaheiminum og svaraði Neves áhorfendunum með handabendingum. Hann benti þeim á að Jota sé í himnaríki að horfa niður til þeirra.
Skömmustulega hegðun áhorfenda má sjá hér fyrir neðan, en Al-Taawon steinlá og tapaði með sex marka mun. Neves, sem er með stórt húðflúr til heiðurs Jota á kálfanum, lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir Ollie Watkins á níundu mínútu.
Sjáðu atvikið

Al-Taawoun fans chant “Jota, Jota, Jota” to Rúben Neves, apparently trying to provoke him by referencing his late friend Diogo Jota.
by
u/pinteererik in
soccer

Mynd: EPA