Fotbolti.net
13.09.26 - 15:04
Brynjar Ingi Erluson

Mark dæmt af Hákoni í þriðja sigri Lille - Meistararnir skoruðu átta

Hákon skoraði en það var dæmt af

Hákon skoraði en það var dæmt af

Canon

Mynd: EPA

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille unnu 2-0 sigur á Troyes í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
Skagamaðurinn kom boltanum í netið eftir rúma mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það var þó afar tæpt og var þetta aðeins spurning um nokkra millimetra, en því miður var það ekki honum í hag í dag.

Fimmtán mínútum síðar skoraði Tiago Santos stórkostlegt mark fyrir utan teig áður en dómarinn tók annað mark af heimamönnum þegar Michel Diaz var dæmdur rangstæður.

Hákon fór af velli hálftíma fyrir leikslok og undir lokin bætti Ethan Mbappe, bróðir Kylian hjá Real Madrid, við öðru marki Lille og tryggði sigurinn.

Þetta var þriðji deildarsigur Lille á tímabilinu en liðið er enn taplaust og komið á toppinn með tíu stig.

Amin Cosic kom inn af bekknum í 8-1 slátrun Viking á Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni.

Júlíus Mar Júlíusson var í liði Kristiansund en var tekinn af velli í hálfleik þegar staðan var 5-1.

Amin kom inn á 68. mínútu hjá Viking sem gekk endanlega frá andstæðingnum og er nú komið upp að hlið Bodö/Glimt með 47 stig eftir 20 leiki.

Nökkvi Þeyr Þórisson byrjaði í markalausu jafntefli Telstar gegn Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni. Telstar er í 14. sæti með fimm stig.

Ísak Andri Sigurgeirsson fékk tækifæri í byrjunarliði Norrköping sem gerði markalaust jafntefli við Oddevold í sænsku B-deildinni. Norrköping er á toppnum með 52 stig eftir 24 leiki og færist nær endurkomu í úrvalsdeildina.
Amin Cosic spilaði í risasigri á Kristiansund

Amin Cosic spilaði í risasigri á Kristiansund

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.