Fotbolti.net
11.10.26 - 10:26
Brynjar Ingi Erluson

Gagnrýndur fyrir afstöðu sína til Man City-málsins - „Þurfum að breyta reglunum“

Joe Cole kom með óvinsæla skoðun

Joe Cole kom með óvinsæla skoðun

Canon

Mynd:

Sparkspekingurinn Joe Cole telur brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar ekki sambærileg við hagræðingu úrslita eða brot á lyfjareglum.
Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar fann Man City sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum deildarinnar.

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði gert sýndarsamninga til að blása upp tekjur sínar. City hefur alla tíð neitað sök og áfrýjað niðurstöðunni.

Margir vilja að félagið verði fellt um deild og svipt titlum en Cole er ekki á því.

„Svindl er misalvarlegt. Það er hægt að brjóta lyfjareglur eða múta dómurum, en þetta skekkir líka myndina í hina áttina.“

„Það þarf að refsa Man City en það eina hreina við fótboltann er það sem gerist á vellinum.“

„Í mínum augum varpar þetta ekki skugga á það sem þeir afrekuðu. Það er ekki rétt að leggja þetta að jöfnu við hagræðingu úrslita. Það er botninn.“

„Við þurfum að breyta reglunum svo önnur félög geti haldið áfram að vaxa. Mér finnst því ekki að það eigi að refsa þeim afturvirkt,“
sagði Cole, en orð hans vöktu hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum.

Martin Keown, fyrrverandi leikmaður Arsenal, var með Cole í útsendingunni og furðaði sig á afstöðu hans.

„Ef félagið verður fundið sekt verður að svipta það titlunum sem það vann. Í öðrum íþróttum missirðu gullverðlaunin. Það má ekki dæla peningum inn í félag með sýndarsamningum. Við verðum að taka á þessu fyrir félög eins og Aston Villa og Newcastle sem þurfa að láta sína bestu leikmenn fara til að standast reglurnar. Mér finnst að Man City eigi að vera í félagaskiptabanni í janúar og jafnvel að draga eigi 30 stig af liðinu til að byrja með,“ sagði Keown.
Martin Keown var hissa á orðunum sem komu úr munni Cole

Martin Keown var hissa á orðunum sem komu úr munni Cole

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.