Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. nóvember 2022 11:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hollenski hópurinn: Xavi Simons fer á sitt fyrsta stórmót
Van Dijk er að sjálfsögðu í hópnum.
Van Dijk er að sjálfsögðu í hópnum.
Mynd: EPA
Xavi Simons, Jeremie Frimpong og Andries Noppert eru þeir þrír í hópnum sem ekki hafa spilað landsleik.
Xavi Simons, Jeremie Frimpong og Andries Noppert eru þeir þrír í hópnum sem ekki hafa spilað landsleik.
Mynd: EPA
Louis van Gaal er búinn að opinbera 26 manna leikmannahóp sem fer fyrir Hollands hönd á HM í Katar.

Virgil van Dijk, Tyrell Malacia, Xavi Simons, Memphis Depay, Cody Gakpo og Steven Bergwijn eru á meðal þeirra sem fá sæti í hópnum. Simons er nítján ára leikmaður PSV sem kom frá PSG í sumar.

Holland er í A-riðli eins og Katar, Senegal og Ekvador. Meðal nafna sem ekki eru í hópnum eru Donny van de Beek, Jasper Cillessen, Sven Botman, Ryan Gravenberch og Donyell Malen. Bruno Martins Indi og Gini Wijnaldum eru meiddir og fara því ekki með.

Hópurinn
Markverðir: Justin Bijlow (Feyenoord), Remko Pasveer (Ajax), Andries Noppert (sc Heerenveen)

Varnarmenn: Virgil van Dijk (Liverpool), Nathan Aké (Manchester City), Daley Blind (Ajax), Jurriën Timber (Ajax), Denzel Dumfries (Internazionale), Stefan de Vrij (Internazionale), Mathijs de Ligt (Bayern Munich), Tyrell Malacia (Manchester United), Jeremie Frimpong (Bayer Leverkusen)

Miðjumenn: Frenkie de Jong (FC Barcelona), Steven Berghuis (Ajax), Davy Klaassen (Ajax), Teun Koopmeiners (Atalanta), Cody Gakpo (PSV), Marten de Roon (Atalanta), Kenneth Taylor (Ajax), Xavi Simons (PSV)

Sóknarmenn: Memphis Depay (FC Barcelona), Steven Bergwijn (Ajax), Vincent Janssen (Royal Antwerp FC), Luuk de Jong (PSV), Noa Lang (Club Brugge), Wout Weghorst (Beşiktaş)
Athugasemdir
banner
banner