11.11.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Andri fékk gat á hausinn í leik með Ronaldinho - „Iniesta var hræddur"

Ronaldinho og Eiður Smári á góðri stundu

Mynd: EPA

Fótbolti.net heimsótti Andra Lucas á Englandi en fyrri hlutinn úr þeirri ferð birtist á síðunni í dag. Andri Lucas sagði þar athyglisiverða reynslusögu af því þegar hann slasaðist í fótboltatennis með Ronaldinho á sínum tíma.

TENGT EFNI
Atvinnumaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen - Fyrri hluti
Eiður Smári Guðjohnsen, pabbi Andra Lucasar, spilaði, eins og alþjóð veit, með Barcelona á sínum tíma og var liðsfélagi Ronaldinho.
„Ég er með ör því ég fékk gat á hausinn þegar ég var sjö ára. Þá vorum við í fótboltatennis, ég, Svenni bróðir (Sveinn Aron Guðjohnsen) og Ronaldinho," sagði Andri.
„Hann kíkir og byrjar að spila með okkur. Hann kemur með alveg geggjaðan bolta yfir mig. Ég ætla að snúa mér við og ætla að ná honum og dett og fæ gat á hausinn. Það fer að blæða út um allt og ég fer grenjandi inn í klefa. Þá þurfti læknirinn hjá aðalliði Barcelona að sauma mig á staðnum."
„Ég man að (Andres) Iniesta var hræddur um hvað hafi gerst. Hann var að reyna komast að því og hann segir: 'Er ekki allt í lagi, förum að leita að pabba þínum. Það er gaman að geta sagt frá svona og getað hugsað til baka. Maður áttar sig á því í dag hversu ruglað þetta var og óraunverulegt."