10.11.26 - 18:52
Brynjar Ingi Erluson
Ánægður í Danmörku en útilokar ekki að enda ferilinn heima - „Alltaf verið opinn fyrir þessu“

Guðlaugur Victor Pálsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðlaugur Victor samdi við Horsens á síðasta ári

Mynd: Horsens

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðlaugur Victor Pálsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er opinn fyrir því að ljúka fótboltaferlinum á Íslandi, en hann ræddi dvölina í Danmörku, framtíðina og möguleikann á að spila hér heima í viðtali við Fótbolta.net.
Guðlaugur Victor sneri aftur til Danmerkur á síðasta ári, en þar hóf hann einmitt atvinnumannaferilinn þegar hann fór ungur að árum frá Fylki til AGF.
Hann staldraði þó ekki lengi við hjá AGF, því árið 2008 fór hann á reynslu hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool. Þar heillaði hann alla upp úr skónum og gekk í kjölfarið til liðs við félagið nokkrum mánuðum síðar, en Danmörk hefur alla tíð átt sérstakan stað í hjarta hans.
Árið 2015 sneri hann aftur til Danmerkur og lék með Esbjerg í tvö ár áður en leiðir skildu. Hann kom svo til landsins í þriðja sinn á síðasta ári þegar hann samdi við Horsens, sem lék þá í B-deildinni.
Guðlaugur hjálpaði Horsens að komast upp í efstu deild og hefur liðið staðið sig ágætlega sem nýliði. Það situr í 7. sæti með 16 stig eftir fjórtán umferðir, en aðeins unnið einn deildarleik af síðustu sex og er þá dottið úr leik í bikarnum.
„Það gengur allt í lagi. Við erum fyrir miðju og byrjum rosalega vel, en búið að vera smá svona dala á okkur núna. En á heildina litið bara sem nýliði þá bara er þetta búið að vera mjög fínt hingað til,“ sagði hann við Fótbolta.net.
Hann er ánægður með hlutverk sitt hjá félaginu og líður vel í Danmörku, bæði innan vallar sem utan.
„Já, algjörlega. Ég er að spila mikið og og mér líður vel, bæði andlega sem líkamlega, þannig að ég hef ekki yfir neinu að kvarta.“
„Það er mjög gott að vera í Danmörku og bara virkilega sáttur.“
Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?
„Ég held þetta sé bara svolítið einn leikur í einu hjá mér núna. Að fara eitthvað annað er ekki á dagskrá hjá mér. Ég er búinn að fara nóg á mínum ferli þannig að ég er bara mjög sáttur að vera búinn að finna fyrir smá fótfestu núna. En eins og ég hef alltaf sagt, fótboltinn er áhugaverður og maður veit aldrei hvað gerist en en ég er ekkert að plana það að fara frá Danmörku.“
„Ég á kærustu sem er dönsk og er að byggja upp líf í Danmörku og þannig að ég bara er mjög ánægður og gæti alveg séð fyrir mér búa þar.“
Kitlar að klára ferilinn heima
Eins og áður kom fram var Guðlaugur aðeins ungur að árum þegar hann fór frá Fylki og náði því aldrei að spila deildarleik með meistaraflokki félagsins. Það kitlar hann þó að ljúka ferlinum heima á Íslandi, þótt ekkert sé ákveðið í þeim efnum.
„Ég er alltaf einhvern veginn opinn fyrir þessu.. Ég spilaði aldrei á Íslandi og ég hef alltaf verið með það svona einhvern veginn í mér að ég væri alveg til í að enda ferilinn heima. En hvort það verði af því veit ég ekki en það er klárlega eitthvað sem ég er alveg opinn fyrir,“ sagði hann í lokin.