Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal, var rekinn af velli í 1-1 jafnteflinu gegn Crystal Palace í gær en hann fór þá í háskalega tæklingu á þýska miðjumanninum Max Meyer.
Aubameyang var rekinn af velli á 67. mínútu en hann steig þá á ökkla Meyer.
Hann fékk fyrst að líta gula spjaldið en eftir að VAR hafði skoðað atvikið var honum vísað af velli.
Aubameyang sá eftir því sem hann gerði og bað Meyer afsökunar með mynd sem hann birti á Instagram.
„Láttu þér batna sem fyrst," skrifaði Aubameyang undir myndina.
Athugasemdir