Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. janúar 2022 11:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sandra María á leið heim í Þór/KA?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen er á leið heim í Þór/KA ef marka má heimildir Orra Rafns Sigurðarsonar. Orri þekkir vel til í kvennaboltanum og segist hafa heimildir fyrir því að Sandra gæti haldið heim til Akureyrar.

Sandra hefur leikið með Leverkusen undanfarin ár. Hún var frá fótboltavellinum á síðasta ári þar sem hún gekk með sitt fyrsta barn. Hún eignaðist dóttur í september á síðasta ári.

Sandra María varð Íslandsmeistari með Þór/KA árin 2012 og 2017. Hún hefur skorað 73 mörk í 116 deildarleikjum fyrir félagið og var fyrirliði liðsins áður en hún hélt í atvinnumennsku.

„Þetta er risa statement frá Þór/KA, sem ætla sér stóra hluti í sumar," skrifar Orri á Twitter.

Sjá einnig:
Sandra nýtur lífsins með Ellu - „Ætla mér að koma aftur á völlinn" (17. des)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner