Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 12. janúar 2023 22:36
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Albert fékk ekki að spreyta sig í tapi gegn Roma
Sigurmark Dybala var laglegt
Sigurmark Dybala var laglegt
Mynd: EPA
Roma 1 - 0 Genoa
1-0 Paulo Dybala ('64 )

Argentínumaðurinn Paulo Dybala skaut Roma áfram í 8-liða úrslit ítalska bikarsins í kvöld er liðið vann Genoa, 1-0, í Róm.

Alberto Gilardino, þjálfari Genoa, tók þá ákvörðun að byrja með Albert Guðmundsson á bekknum og kom hann ekkert við sögu í þessum leik.

Eina markið kom á 64. mínútu leiksins en Dybala gerði það eftir gott einstaklingsframtak en hann keyrði vinstra megin inn í teiginn, hótaði skoti nokkrum sinnum áður en hann lét síðan vaða á markið.

Lokatölur 1-0 fyrir Roma en Genoa er úr leik þetta árið.
Athugasemdir
banner
banner
banner