mið 12. febrúar 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Ben Gibson ósáttur hjá Burnley - Æfir með Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Ben Gibson, varnarmaður Burnley, er farinn að æfa með sínu gamla félagi Middlesbrough. Burnley keypti Gibson frá Middlesbrough sumarið 2018 á fimmtán milljónir punda.

Gibson hefur einungis spilað sex leiki síðan þá og er afar ósáttur við dvöl sína hjá Burnley.

Hinn 27 ára gamli Gibson var nálægt því að fara til Watford í janúar en þau félagaskipti gengu ekki upp.

Gibson, sem er með 40 þúsund pund í laun á viku, er ekki ánægður hjá Burnley og hann lenti í rifrildi við þjálfara hjá félaginu á dögunum.

Í kjölfarið var rætt um að senda Gibson í U23 ára lið Burnley en þess í stað var ákveðið að hann æfa með sínu gamla félagi Middlesbrough á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner