Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 17:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KR þurfti að gera markvarðarbreytingu
Arnar Freyr meiddist.
Arnar Freyr meiddist.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Snær Georgsson.
Halldór Snær Georgsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, þurfti að fara meiddur af velli í fyrsta leik Bestu deildarinnar gegn Keflavík. Leikurinn er núna í fullum gangi en Arnar meiddist eftir um tíu mínútna leik.

„Arnar Freyr, markvörður KR, liggur niðri og virðist sárþjáður. Halldór Snær hitar upp," skrifaði Kári Snorrason í beinni textalýsingu úr Vesturbænum.

Lestu um leikinn: KR 3 -  2 Keflavík

Halldór Snær Georgsson kom inn á í stað Arnars en hann var keyptur frá Fjölni fyrir síðustu leiktíð.

Markvarðarstaðan hjá KR er einstök í íslenskum fótbolta og mikil ábyrgð sem henni fylgir. Það hefur vakið athygli í aðdraganda móts hversu mikið markvörður KR hefur spilað utan eigin vítateigs.

„Auðvitað væri maður til í að það væru bara alltaf fullkomnar ákvarðanir; að markmaðurinn myndi bíða og fara á réttum tímapunktum. En því miður er manneskjan ekki þannig að hún tekur alltaf réttar ákvarðanir. Við verðum svolítið að reyna lifa með þessu; vonum að það verði fleiri réttar ákvarðanir heldur en ekki. Svo verður þetta oft skemmtilegra; þú byrjar á einhverju og svo fer það aðeins lengra, þú ætlaðir þér kannski ekki svona langt með það, en það er bara svo gaman. Þá áttu að bakka... áttu að lækka í góða laginu í partýinu?" sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, í bikarmörkunum á RÚV á dögunum.
Slapp
banner
banner