Southampton 2 - 1 Middlesbrough
0-1 Riley McGree ('5 )
1-1 Ross Stewart ('45 )
2-1 Shea Charles ('116 )
0-1 Riley McGree ('5 )
1-1 Ross Stewart ('45 )
2-1 Shea Charles ('116 )
Southampton mun leika til úrslita við Hull City um sæti í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa unnið Middlesbrough, 2-1, eftir framlengdan leik í undanúrslitunum á Saint Mary's leikvanginum í kvöld.
Liðin gerðu markalaust jafntefli á Riverside-leikvanginum um helgina og í kjölfarið var greint frá því að Southampton hafi verið kært fyrir að njósna um æfingasvæði Middlesbrough fyrir leikinn.
Það var mikið drama í kringum það eftir að starfsmaður Middlesbrough sá starfsmann Southampton horfa og taka upp myndbönd af æfingum Boro.
Það virkaði ekki hjá Boro á fyrstu fimm mínútunum. Riley McGree kom gestunum yfir er Callum Brittain kom laglegum bolta á McGree sem skoraði með góðu skoti.
Ross Stewart jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Leo Scienza kom aukaspyrnu á fjær á Ryan Manning sem átti skot í átt að marki. Sol Brynn varði en ekki lengra en til Stewart sem setti boltann í markið.
FJörið var aðeins minna í þeim síðari. Southampton var með yfirráð en tókst ekki að skapa sér mörg færi. Manning fékk ágætis séns en setti frákast af Luke Ayling og framhjá.
Hvorugu liðinu tókst að skora áður en leiktíminn rann út og því framlengt. Southampton hélt áfram að stjórna leiknum og tókst þeim að sækja sigurmarkið þegar fjórar mínútur voru eftir af síðari hálfleiknum.
Shea Charles átti fyrirgjöf frá hægri, í gegnum alla vörnina og í vinstra hornið. Minnti um margt á aukaspyrnu Enzo Fernandez gegn Liverpool um helgina.
Þetta dugði Southampton til þess að vinna leikinn og komast í úrslitaleikinn gegn Hull City. Hann verður spilaður eftir tíu daga á Wembley, en þetta verður annar úrslitaleikur Southampton þar síðustu tvö ár. Hull hefur ekki spilað í úrvalsdeildinni síðan 2017 á meðan Southampton lék þar síðast á síðustu leiktíð.


