Southampton og Middlesbrough eigast við í gríðarlega mikilvægum undanúrslitaleik í umspili Championship deildarinnar í kvöld.
Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Middlesbrough og ríkir mikil eftirvænting fyrir seinni leikinn.
Sigurvegari kvöldsins mætir Hull City í úrslitaleik um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni fyrir næstu leiktíð.
Southampton vill komast aftur upp í deild þeirra bestu eftir fall í fyrra á meðan Middlesbrough lék síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2016-17 og er að taka þátt í umspili Championship-deildarinnar í þriðja sinn síðan þá.
Leikur kvöldsins
19:00 Southampton - Middlesbrough (0-0)

