Fotbolti.net
12.05.26 - 16:45
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Fyrirliðinn þegar Spánn vann EM er ekki á 55 manna lista fyrir HM

Fyrirliðinn þegar Spánn vann EM er ekki á 55 manna lista fyrir HM
Canon

Mynd: EPA

Sóknarmaðurinn Alvaro Morata á ekki möguleika á að fara með spænska landsliðinu á HM í sumar en þjálfarinn Luis de la Fuente valdi hann ekki í 55 manna úrtakshóp fyrir mótið. Hópurinn verður svo skorinn niður í 26 manna lokahóp.

Morata, sem er 33 ára, var fyrirliði Spánar þegar liðið vann EM 2024 en gat ekki tekið þátt í úrslitaleiknum eftir að hafa meiðst í undanúrslitum.
Morata er hjá Como á láni frá AC Milan en hefur ekki skorað í ítölsku A-deildinni á tímabilinu og að mestu verið varamaður.

Diario AS segir að Dani Carvajal leikmaður Real Madrid sé heldur ekki í 55 manna hópnum en hann hefur mikið verið á meiðslalistanum. Þá er heldur ekki pláss fyrir Jesus Navas.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.