Fotbolti.net
12.05.26 - 17:00
Kári Snorrason
Skrifar frá: Viðtal

„Selfoss er að sjálfsögðu tilbúið að greiða það gjald“

Óli Stefán Flóventsson tók við Selfossi í vetur.

Óli Stefán Flóventsson tók við Selfossi í vetur.

Canon

Mynd: Selfoss

Selfoss hefur farið hægt af stað í 2. deildinni þetta sumarið. Liðið er aðeins með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Selfyssingum var spáð toppsætinu fyrir tímabil.

Liðið tapaði 4-2 gegn KFA í fyrstu umferð og fékk síðan á sig jöfnunarmark á lokamínútunum gegn Hvíta riddaranum um síðustu helgi.

Selfoss er þó með tvö af stærstu nöfnum deildarinnar innanborðs í þeim Jóni Daða Bövarssyni og Viðari Erni Kjartanssyni. Viðar var hins vegar í agabanni um síðustu helgi og var því utan hóps.

Fótbolti.net ræddi við Óla Stefán Flóventsson, þjálfara liðsins, um byrjunina á mótinu.
Viðar Örn í agabanni
TENGT EFNI

Viðar Örn í agabanni

Þróunarferli
„Auðvitað hefðum við viljað vera með fleiri stig, eins og allir sem eru í svona stöðu. En við erum í þróun og verðum berskjaldaðir gagnvart okkar veikleikum, sem er besta mál ef við getum farið í að vinna í þeim. Staðan er þannig að það er tiltölulega auðvelt að laga það sem hefur farið úrskeiðis.“

Fjögur mörk af fimm úr föstum leikatriðum
Hvað er það sem hefur farið úrskeiðis?

„Það er helst varnarleikurinn, bæði í 'transition' hjá okkur, þar sem við höfðum staðið okkur vel, en það hefur ekki verið eins gott og við hefðum viljað. Við fáum á okkur hraðar sóknir. Síðan hefur okkur verið refsað úr föstum leikatriðum.

Við höfum fengið á okkur fimm mörk og fjögur þeirra hafa komið úr föstum leikatriðum. Við verðum að horfast í augu við einföld atriði sem hafa verið að klikka hjá okkur. Það er gjaldið sem við þurfum að greiða fyrir að nota unga leikmenn og Selfoss er að sjálfsögðu tilbúið að greiða það gjald.“


Staðreyndir ekki bara tilfinningar
Þú hefur semsagt engar stórkostlegar áhyggjur af þessari byrjun?

„Nei, nei, við erum bara í þessu verkefni. Ég veit hvernig fótbolti virkar, það verða mómentumskipti í þessu. Eina stundina gengur allt upp og lífið leikur við þig, hina stundina gengur þetta ekki og við erum í krummafæti.

Þetta eru móment sem styrkja hópa ef farið er vel og faglega í gegnum þau. Við erum með mjög góð gögn og greiningar sem styðja við það sem við erum að gera. Þannig að við séum ekki bara með tilfinningu fyrir þessu heldur líka staðreyndir.“


Tækifæri gegn Kormáki/Hvöt
Selfoss fær Kormák/Hvöt í heimsókn næstkomandi laugardag. Kormákur/Hvöt vann Víking Ólafsvík í síðustu umferð en laut í lægra haldi gegn Dalvík/Reyni í fyrstu umferð. Óli er vongóður fyrir leiknum.

„Leikurinn leggst vel í mig. Þar fáum við tækifæri til að bæta okkar leik. Eins og ég segi þá snýst þetta um að vera í framför. Við vitum hins vegar að Kormákur/Hvöt er með mikið af frábærum leikmönnum og þetta verður alvöru verkefni. Við tökum þessu verkefni mjög alvarlega og verðum tilbúnir,“ sagði Óli að lokum.
Selfyssingar féllu úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Selfyssingar féllu úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Daði Böðvarsson.

Jón Daði Böðvarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spáð toppsætinu.

Spáð toppsætinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.