Það vakti athygli á laugardag að Viðar Örn Kjartansson var ekki í leikmannahópi Selfoss þegar liðið heimsótti Hvíta riddarann í 2. umferð 2. deildar.
Viðar Örn er í tveggja leikja agabanni og því verður heldur ekki með liðinu í næsta leik, þegar Kormákur/Hvöt kemur í heimsókn á laugardag.
Viðar Örn er í tveggja leikja agabanni og því verður heldur ekki með liðinu í næsta leik, þegar Kormákur/Hvöt kemur í heimsókn á laugardag.
Fótbolti.net hafði samband við Óla Stefán Flóventsson, þjálfara Selfoss, vegna málsins.
„Það kom upp innanhússmál sem varð til þess að Viðar var utan hóps í síðasta leik og verður ekki í hóp í næsta leik heldur. Málið var tekið föstum tökum innan félagsins og niðurstaðan fól í sér afleiðingar en á sama tíma stuðning við leikmanninn."
Hefur það eitthvað að gera með þann vanda sem hann opnaði sig með í vetur að gera?
„Ég ætla ekki að fara nánar út í persónuleg málefni leikmanna eða tengja þetta við hluti sem Viðar hefur áður rætt opinberlega. Ég vil þó segja að Viðar Örn hefur komið gríðarlega sterkur inn í okkar hóp, hækkað standard og gefið mikið af sér. Okkar fókus er einfaldlega að halda áfram þeirri vinnu og þeim gildum sem við höfum verið að byggja upp innan hópsins og nýta þau verkfæri m.a. til að styðja okkar leikmenn í gegnum erfiða tíma," segir Óli Stefán.
Selfoss er með eitt stig eftir tvær umferðir í 2. deild, liðið tapaði gegn KFA í fyrstu umferð áður en það gerði 1-1 jafntefli gegn Hvíta riddaranum.



