Fotbolti.net
12.06.05 - 11:39
Magnús Már Einarsson

Kuranyi til Schalke (Staðfest)

Kuranyi fagnar marki.

Kuranyi fagnar marki.

Canon
Þýski framherjinn Kevin Kuranyi mun skrifa undir 5 ára samning hjá Schalke í sumar. Kuranyi kemur til liðsins frá Stuttgart en talið er að kaupverðið sé um 7 milljónir evra samkvæmt þýska blaðinu Bild. Kuranyi sem er 23 ára hefur verið hjá Stutgart frá árinu 1997 og vakið verðskuldaða athygli fyrir góðan leik undanfarin ár.
,,Ég hef gert fimm ára samning við Schalke og er mjög ánægur með að fara til liðsins. Enginn hjá Stuttgart getur verið reiður út í mig. Félagið er að fá meiri pening frá sölunni heldur en það borgaði mér í laun allan þann tíma sem ég var hjá þeim. Þetta er stærsta salan í sögu félagsins." Sagði Kuranyi við Bild í morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.