Fotbolti.net
12.06.26 - 09:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Argentína á topp heimslistans - Ísland upp um sæti

Úr leik Íslands og Japans.

Úr leik Íslands og Japans.

Canon

Mynd: Matthías Már

Ríkjandi heimsmeistarar frá Argentínu eru komnir aftur í efsta sæti heimslistans eftir sigra gegn Hondúras og Íslandi í aðdragandai heimsmeistaramótsins. Þetta er í fyrsta sinn í tæpt ár sem Argentína er í efsta sæti listans. Nýr listaður var birtur fyrir leiki gærdagsins á HM.

Frakkland var í efsta sæti listans en heimsmeistararnir frá 2018 falla niður í 3. sætið eftir tap gegn Fílabeinsströndinni í aðdraganda HM. Spánn situr ennþá í 2. sæti listans.
Marokkó fer þá upp um eitt sæti, upp í 7. sætið á kostnað Hollands sem fellur niður í 8. sætið eftir tap gegn Alsír.

Þrjú lið halda HM í sumar og eru Mexíkóar í 14. sæti, færast upp um eitt sæti milli lista. Bandaríkin falla niður um eitt sæti og eru nú í 17. sæti. Kanada stendur svo í stað og situr í 30. sætinu.

Þrátt fyrir töp gegn Japan og Argentínu í síðustu landsleikjum fer Ísland upp um eitt sæti, upp í 74. sætið þar sem Finnar falla niður um tvö sæti á listanum eftir töp gegn Þýskalandi og Ungverjalandi.

Heimild: Heimslisti FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.