Leikmenn eins og Thelma Karen Pálmadóttir og Linda Líf Boama hafa komið skemmtilega inn í íslenska kvennalandsliðið undanfarin misseri.
Rætt var um innkomu þeirra í liðið í Uppbótartímanum og talað um það sé jákvæðan punkt í undankeppninni fyrir HM sem var að klárast.
Rætt var um innkomu þeirra í liðið í Uppbótartímanum og talað um það sé jákvæðan punkt í undankeppninni fyrir HM sem var að klárast.
„Thelma og Linda, þessar tvær, þetta er akkúrat það sem maður fagnar að sjá," sagði Magnús Haukur Harðarson.
Það vantaði Sveindísi Jane Jónsdóttur í þetta verkefni en það væri áhugavert að sjá hana og Thelmu Karen þróast saman sem kantmenn liðsins með Lindu Líf upp á topp. Það væri mjög áhugaverð sóknarlína sem gaman væri að sjá.
„Við munum aldrei fá að sjá það," sagði Magnús Haukur en það var rætt um það í þættinum að það mætti svo sannarlega hrista meira upp í liðinu á milli leikja.


