Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fös 12. júní 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
HM um helgina - Fámennasta þjóðin þreytir frumraun sína
HM heldur áfram í dag
HM heldur áfram í dag
Mynd: EPA
Tíu leikir eru á dagskrá í HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó um helgina.

Á morgun mætast gestgjafar Kanada liði Bosníu og Hersegóvínu klukkan 19:00 í B-riðli. Þetta er í annað sinn sem Bosnía tekur þátt á mótinu.

Klukkan 01:00 mætast Bandaríkin og Paragvæ í D-riðli. Heimamenn í Bandaríkjunum hafa beðið spenntir eftir að sjá liðið spreyta sig en þeir mæta Paragvæ sem hefur ekki spilað á HM síðan 2010. Þetta er í níunda sem þjóðin kemst á HM.

Á morgun klukkan 19:00 mætast Katar og Sviss í B-riðli, en þremur tímum síðar spilar Brasilía við Marokkó.

Tveir leikir eru á dagskrá aðfaranótt sunnudags. Haítí mæta Skotlandi klukkan 01:00 í C-riðli og klukkan 04:00 fer fram leikur Ástralíu og Tyrklands í D-riðli.

Þýskaland spilar við Curacao í D-riðli klukkan 17:00 á sunnudag. Curacao er fámennasta þjóðin í sögu HM, en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemst á HM. Fílabeinsströndin mætir Ekvador í sama riðli klukkan 23:00.

Í F-riðli mætast Holland og Japan klukkan 20:00 og þá spilar Svíþjóð við Túnis klukkan 02:00 aðfaranótt mánudags.

Leikir helgarinnar:

föstudagur 12. júní

B-riðill
19:00 Kanada - Bosnía

laugardagur 13. júní

B-riðill
19:00 Katar - Sviss

C-riðill
22:00 Brasilía - Marokkó

D-riðill
01:00 Bandaríkin - Paragvæ

sunnudagur 14. júní

C-riðill
01:00 Haiti - Skotland

D-riðill
04:00 Ástralía - Tyrkland

E-riðill
17:00 Þýskaland - Curacao
23:00 Fílabeinsströndin - Ekvador

F-riðill
20:00 Holland - Japan
02:00 Svíþjóð - Túnis

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner