12.07.05 - 08:33
Magnús Már Einarsson
Fiore lánaður til Fiorentina (Staðfest)




Fiorentina hefur fengið Stefano Fiore að láni frá Valencia þangað til næsta sumar. Fiore sem kom til Valencia frá Lazio síðastliðið sumar gekk illa að vinna sér sæti í liði Valencia og hefur nú verið lánaður heim til Ítalíu en Fiorentina á möguleika á að kaupa kappann næsta sumar.
Fiore vonast til að vinna sér aftur sæti í ítalska landsliðinu en hann sagði: ,,Ég vona að ég nái hefnd fyrir sjálfan mig eftir bitra leiktíð á Spáni og vinni mér aftur sæti í landsliðinu."
Talið er að Fiorentina muni núna reyna að fá Bernardo Corradi sóknarmann Valencia sem hefur líkt og Fiore gengið illa að aðlagast á Spáni eftir að hann kom frá Lazio í fyrra.
Talið er að Fiorentina muni núna reyna að fá Bernardo Corradi sóknarmann Valencia sem hefur líkt og Fiore gengið illa að aðlagast á Spáni eftir að hann kom frá Lazio í fyrra.
