12.07.05 - 15:09
Magnús Már Einarsson
Lamouchi og Mendoza til Marseille (Staðfest)

Sabri Lamouchi.


Sabri Lamouchi.

Franska liðið Marseille hefur fengið tvo leikmenn fyrir næsta tímabil. Um er að ræða fyrrum franska landsliðsmanninn Sabri Lamouchi og sóknarmanninn Andres Mendoza.
Lamouchi sem á tólf landsleiki að baki fyrir Frakka kemur til Marseille frá Genoa þar sem hann var í láni á síðustu leiktíð frá Inter. Lamouchi sem er fyrrum leikmaður Auxerre og Monaco hefur gert árs samning við Marseille með möguleika á framlengingu.
Mendoza kemur til Marseille á láni frá úkraínska liðinu Metalurg Donetsk en franska liðið á möguleika á að kaupa þennan Perúmann standi hann sig vel.
Mendoza kemur til Marseille á láni frá úkraínska liðinu Metalurg Donetsk en franska liðið á möguleika á að kaupa þennan Perúmann standi hann sig vel.
