Fotbolti.net
12.07.14 - 16:31
Jóhann Ingi Hafþórsson

Jörundur Áki: Tilfinningin er bæði góð og vond

Auglýsing
Jörundur Áki Sveinsson.

Jörundur Áki Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur var bæði sáttur og svekktur eftir leik sinna manna gegn Þrótti í dag.
Þróttur var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en BÍ/Bolungarvík í þeim síðari. Þróttarar jöfnuðu svo leikinn á síðustu mínútum leiksins.

,,Tilfinningin er bæði góð og vond,\" sagði Jörundur í samtali við fótbolta.net eftir leik.

,,Við vorum virkilega ósáttir við fyrri hálfleikinn, vorum 1-0 undir en það var allt annar bragur á seinni hálfleiknum, ég var ánægður með hann þangað til þeir jafna.\"

,,Mér fannst við koma virkilega út í seinni og settum ágætis pressu á þá og skoruðum tvö góð mörk og hefðum getað sett fleiri en við gerðum svo ekki og þá er þetta alltaf galopinn leikur.\"

Jörundur var spurður út í hvað hann hafði sagt í hálfleik.

,,Við fórum bara aðeins yfir hvað við hefðum getað gert betur, ég var ósáttur við ákveðin atriði í fyrri hálfleik, menn voru sofandi og langt frá mönnum og engan vegin að gera það sem við ætluðum okkur að gera.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.