Barcelona hefur keypt franska varnarmanninn Clement Lenglet frá Sevilla á 35,9 milljónir evra eða 31,6 milljónir punda.
Clement skrifaði undir samning við Börsunga sem gildir til ársins 2023.
Hinn 23 ára gamli Clement kom til Sevilla frá Nancy í fyrra og varð strax fastamaður í liðinu.
Clement hefur spilað með öllum yngri landsliðum Frakka en Barcelona bindur miklar vonir við hann fyrir framtíðina.
👋 Bienvenue @clement_lenglet!
— FC Barcelona (@FCBarcelona) July 12, 2018
🔵🔴 Welcome to Barça!
⚽️ #EnjoyLenglet
😃 #EnjoyBarça pic.twitter.com/NS0IFa7KwJ
Athugasemdir