Fotbolti.net
12.07.19 - 15:00
Arnar Daði Arnarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið umferða 1-11 - Óskar og Pétur bestir

Óskar Hrafn er besti þjálfari 1-11.

Óskar Hrafn er besti þjálfari 1-11.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Í Innkasso-horninu sem kom út fyrr í dag var opinberað val á úrvalsliði umferða 1-11, besti leikmaðurinn valinn og besti þjálfarinn.

Pétur Theodór Árnason, sóknarmaður Gróttu, var valinn besti leikmaður umferða 1-11. Nýliðar Gróttu sitja í 2. sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir toppliði Fjölnis. Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Gróttu var valinn besti þjálfari fyrri hlutans.

Smelltu hér til að hlusta á Innkasso-hornið.

Varamannabekkur:
Aron Birkir Stefánsson - Þór
Emir Dokara - Víkingur Ó.
Rúnar Þór Sigurgeirsson - Keflavík
Axel Freyr Harðarson - Grótta
Tiago Fernandes - Fram
Helgi Guðjónsson - Fram
Jasper Van Der Heyden - Þróttur R.
<b>Atli Gunnar Guðmundsson - Fjölnir:</b> Hefur haldið markinu fimm sinnum hreinu í Inkasso-deildinni í sumar og aðeins fengið á sig tíu mörk. Hefur vaxið mikið í sumar.

Atli Gunnar Guðmundsson - Fjölnir: Hefur haldið markinu fimm sinnum hreinu í Inkasso-deildinni í sumar og aðeins fengið á sig tíu mörk. Hefur vaxið mikið í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Emmanuel Eli Keke - Víkingur Ó.:</b> Stjórnar þeirri vörn sem hefur fengið fæst mörk á sig í deildinni, níu talsins.

Emmanuel Eli Keke - Víkingur Ó.: Stjórnar þeirri vörn sem hefur fengið fæst mörk á sig í deildinni, níu talsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Harley Williard - Víkingur Ó.:</b> Potturinn og pannan í annars tíðindalitlum sóknarleik liðsins í sumar.

Harley Williard - Víkingur Ó.: Potturinn og pannan í annars tíðindalitlum sóknarleik liðsins í sumar.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

<b>Arnar Þór Helgason - Grótta:</b> Stór og stæðilegur varnarmaður sem fáir vissu hver var fyrir tímabilið. Verið einn besti leikmaður hjá nýliðum Gróttu í sumar.

Arnar Þór Helgason - Grótta: Stór og stæðilegur varnarmaður sem fáir vissu hver var fyrir tímabilið. Verið einn besti leikmaður hjá nýliðum Gróttu í sumar.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

<b>Rasmus Christiansen - Fjölnir:</b> Átt frábært tímabil með Fjölni í vetur og hefur sýnt að hann á heima í Pepsi Max-deildinni. Virkilega góður með og án bolta.

Rasmus Christiansen - Fjölnir: Átt frábært tímabil með Fjölni í vetur og hefur sýnt að hann á heima í Pepsi Max-deildinni. Virkilega góður með og án bolta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

<b>Bjarki Þór Viðarsson - Þór:</b> Átt mjög gott tímabil hingað til í vörninni hjá Þór sem hefur aðeins fengið á sig 11 mörk. Tekur virkan þátt í sóknarleik liðsins.

Bjarki Þór Viðarsson - Þór: Átt mjög gott tímabil hingað til í vörninni hjá Þór sem hefur aðeins fengið á sig 11 mörk. Tekur virkan þátt í sóknarleik liðsins.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

<b>Nacho Gil - Þór:</b> Einn af lykilmönnum Þórs og ástæðan fyrir góðu gengi liðsins. Hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu sem hefur kostað Þór stig.

Nacho Gil - Þór: Einn af lykilmönnum Þórs og ástæðan fyrir góðu gengi liðsins. Hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu sem hefur kostað Þór stig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

<b>Hans Viktor Guðmundsson - Fjölnir:</b> Hefur verið öflugur með Fjölni í sumar í nýju hlutverki á miðjunni.

Hans Viktor Guðmundsson - Fjölnir: Hefur verið öflugur með Fjölni í sumar í nýju hlutverki á miðjunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Fred - Fram:</b> Verið geysilega öflugur í spútnikliði Fram í sumar.

Fred - Fram: Verið geysilega öflugur í spútnikliði Fram í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Pétur Theodór Árnason - Grótta:</b> Hefur verið á eldi í sumar. 10 mörk í 11 leikjum.

Pétur Theodór Árnason - Grótta: Hefur verið á eldi í sumar. 10 mörk í 11 leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

<b>Alvaro Montejo - Þór:</b> Einn hættulegasti framherji deildarinnar. Þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með sjö mörk í aðeins átta leikjum sökum meiðsla.

Alvaro Montejo - Þór: Einn hættulegasti framherji deildarinnar. Þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með sjö mörk í aðeins átta leikjum sökum meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.