Ísland lauk leik á opna Norðurlandamótinu í dag þegar liðið mætti Danmörku 1. Leiknum lauk með 3-0 sigri danska liðsins.
Þetta var þriðji leikur Íslands á mótinu. Liðið gerði 1-1 jafntefli við Svíþjóð í fyrsta leik og vann 1-0 sigur á Danmörku 2 í öðrum leik sínum.
Norðurlandamótið er með óhefðbundnu sniði í ár. Öll lið spila þrjá leiki en ekki verður leikið um sæti eða krýndir Norðurlandameistarar.

Byrjunarlið Íslands í dag:
Fanney Inga Birkisdóttir (m)
Steingerður Snorradóttir
Sigríður Theódóra
Eyrún Embla Hjartardóttir
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (f)
Katla Tryggvadóttir
Margrét Brynja Kristinsdóttir
Margrét Lea Gísladóttir
Emelía Óskarsdóttir
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
Ísabella Sara Tryggvadóttir
Athugasemdir