Ætla að fá grískt ungstirni í stað Adeyemi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýska félagið Borussia Dortmund er búið að finna arftaka Karim Adeyemi, sem er á leið til Barcelona. Dortmund hefur eyrnamerkt gríska ungstirnið Kostas Karetsas sem arftaka hans.
Dortmund hefur samþykkt að selja Adeyemi til Barcelona fyrir 29 milljónir evra.
Salan verður frágengin á næstu sólarhringum og Dortmund er þegar búið að finna mann í hans stað.
Það er hinn 18 ára gamli Karetsas, sem hefur spilað vel með Genk í Belgíu. Hann er fæddur og uppalinn í Belgíu, en á gríska foreldra og valdi að spila fyrir Grikkland eftir að hafa áður leikið með yngri landsliðum Belgíu.
Karetsas var á lista Guardian yfir efnilegustu leikmenn heims árið 2024 og á þegar tíu landsleiki og þrjú mörk fyrir gríska landsliðið.
Genk er talið vilja fá um 35 milljónir evra fyrir Karetsas, en Dortmund vill reyna að lækka verðmiðann. Leikmaðurinn er sagður mjög spenntur fyrir því að spila fyrir Dortmund og ætti samkomulag að nást á næstu dögum.